Eyjarnar El Hierro, La Palma, La Gomera, Tenerife, Gran Canaria, Fuerteventura og Lanzarote eru allar ægifagrar en samt mjög ólíkar. Hver þeirra heillar gesti sína og býður upp á úrvals ferðaþjónustu og gistingu við allra hæfi og vali á milli ýmissa kosta í menningaratburðum og úrval af frístundagamni.
Sameiginlegt einkenni Kanaríeyja er uppruni þeirra sem eldgosaeyja. Þær mynda raunverulega paradís, sem býður upp á slökun og tilbreytingu í aðeins rúmlega tveggja tíma flugfjarlægð frá meginlandi Spánar og fjögurra stunda fjarlægð frá helstu höfuðborgum Evrópu.
Risastórar hvítar sandöldur og kristaltær sjór, landslag sem minnir á tunglið, villtir runnar, fjarlægar smástrendur með glitrandi svörtum söndum, eldfjöll, víðáttumiklar gylltar strendur ... og sérstakur andi smáþorpa, sem hefur verið haldið við í upprunalegu útliti og sögu þorpanna minnst með því að halda upp á ævaforna siði með hátíðum, hvert þorp á sinn hátt. Þar er m.a. kynnt matargerð innfæddra, sem er jafn einföld og hún er fáguð.
Eyjarnar eru ekki síður fullkominn staður til þess að njóta náttúrunnar með útiveru og hreyfingu, fara í göngur, fallhlífarstökk, stunda sjóíþróttir, golf ... 365 daga á ári eins og hver vill og eins lengi og hverjum sýnist. Á Kanaríeyjum bíður ykkar besta hugsanlega fríið á framandi stað, sem jafnframt er nálægur, talinn til Evrópu og með sömu þægindum og aðrir áfangastaðir þar.
Sjö eyjar ... sjö heimar